24.1.2009 | 23:41
Bull
Hverjum dettur nú í hug að þessi skoðanakönnun gæti staðist að Vinstri Grænir fengju yfir 32% atkvæða ef kosið yrði núna. Það eru minnsta kosti 15% af þessu fólki sem aldrei myndu þora að kjósa Vinstri Græna. En þetta er ágætis hótun til hinna flokkanna á,að ef ekki verður bót á stjórnarfarinu og siðleysinu íslenskri pólitík þá gæti farið illa. Ég er eiginlega alveg hissa að Vinstri Grænir skuli hafa áhuga á að taka yfir óhroðann. Ég held að V-G ættu að vanda sig betur og ég sé ekki betur að þeir séu að komast í hóp hinna spillingarflokkanna. Það myndi verða pólitískt sjálfsmorð. Ég skal taka fram að ég hef kosið V-G í undan förnum kosningum en ef þeir ætla að fara að taka við gumsinu geta þeir gleymt atkvæði mínu.Það væri óskandi að hægt væri að mynda hér öfluga hreyfingu með siðferðið í lagi , sem gæti komið á fót nýju og réttlátu Íslandi. B.G.
Fylgi VG mælist rúmlega 32% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.