Björn Bjarnason

Mér sýnist að þarna hafi aumingja maðurinn Arnór Jónsson hlaupið óvart yfir strikið þegar hann ráðleggur Birni Bjarnasyni að skjóta sig til að gera þjóðinni greiða. Ég hef aldrei verið sammála Birni í einu né neinu í gegnum tíðina, enda erum við algerlega á öndverðum meiði í pólitík. Hann virkar á mig sem hernaðarsinni og fastur í gamla kalda stríðsfarinu. en ég er friðarins maður bæði lands og lýðs. En þetta gefur mér ekki leyfi til að vera með óþverra skítkast út í mína andstæðinga. Ef maður ætlar að koma á framfæri öndverðum skoðunum verður maður að bera ábyrgð á því sem maður lætur frá sér fara. Annars er svo sem ekki hægt að að taka mark á þessu rausi Arnórs fyrr en hann lagfærir réttritun sína. Ég gat ekki betur séð en að öll orðin hjá Arnóri væru vitlaust stafsett. B.G.
mbl.is „Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ábyrgð er skrifað með y

Ási (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 20:00

2 Smámynd: Baldur Guðmundsson

Jú, það ku víst vera rétt. Maður á að kannast við það ef maður gerir ekki rétt. Þakka ábendinguna.

Baldur Guðmundsson, 25.4.2008 kl. 10:26

3 identicon

Sæll, fann þetta blogg á þvælingi mínum um netið, bið að heilsa og vona að þið hafið það gott. Kveðja frá Kópaskerinu.

Það á bara ekki að vera með svona skítkast á netinu.

Dúna (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Baldur Guðmundsson
Baldur Guðmundsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband