16.1.2008 | 22:02
Á villigötum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2007 | 22:15
Sðferðisbrestur þjóðar
Siðferðisbrestur
Ég hef verið að velta því fyrir mér undanfarið þegar maður er nú sestur í helgan stein hvernig græðgisvæðing þjóðarinnar er að leiða okkur í algerar ógöngur bæði siðferðilega og efnahagslega.Ég merki mikla afturför á ýmsum sviðum og er helst að sjá að Ísland sé að verða eign 10% þjóðarinnar og erlendir aðila séu að narta í kökuna líka. Ráðamenn þjóðarinnar eru alveg blindaðir af stóriðjustefnunni og vilja öllu til kosta til að koma upp álverum sem víðast. Nú er komin upp ný vá, Samfylkingin er sest í ráðherrastólana og það vita allir hver stefna hennar er, að koma Íslandi í ESB með öllu því afsali á stórn landsins, sem við höfum þó haft að hluta til en margar tilskipanir koma frá ESB í gegnum samninginn sem við bandalagið var gert. Siðferði landans fer hrakandi sem sést á því að nú virðist orðið vera í lagi að sökkva hálendinu hvar sem það finnst og láglendinu líka reyndar ef einhver stórfyrirtæki vilja reysa hér álver. Annað dæmi um hnignun og úrkynjun er þessi gengdarlausa græðgi fjárfesta sem sumir hverjir eru með miljarða í laun á ári fyrir utan gróðann af fjárfestingunum sem fjármagnaðar eru með lánum trúi ég. Á sama tíma og sumir hverjir baða sig í peningum og borga lítið í skatta miðað við allan auðinn eru heilu starfsstéttirnar í menta og heilbrigðisgeiranum í stórfeldum vandræðum með að manna stöðurnar vegna láglaunastefnu stjórnvalda, sveitafélaga og atvinnurekenda. Hinn vestræni heimur er að gera út af við þennan hnött sem við búum á með gegndarlausri mengun sem er orsök græðginnar sem hrjáir heiminn um þessar mundir. Ráðamenn í sumum ríkjum eru svo gersneyddir því að hafa vitiborna framtíðarsýn að þeir þora ekki að sína dug til að stöðva þessa óheilla þróun. Auðmagnið hefur svo mikil völd að það er illráðanlegt meðan að mikið vill altaf hafa meira og meira, það er aldrei nóg. BG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.8.2007 | 12:02
Blogghugleiðingar
Það er orðið býsna langt síðan ég hef bloggað sem er vegna andlegrar leti og ekki undan neinu að kvarta eða neinn blóraböggull í sigtinu. Ég hef svolítið verið að kíkja á blogg annarra og maður skildi ætla að annar hver íslendingur stundi meira og minna blogg. Æði er það nú misjafnt að gæðum, bæði inntak og málfar. Sumir ættu nú að gera eitthvað annað sér til dundurs en blogga t.d. stunda tölvuleiki eð vídeógláp. Það er ekki alslæmt þó ritmálið sé ekki alveg 100%. Öll skrifum við einhverjar málvillur og skilst þó mæta vel en sumt er algerlega hreint bull og mætti vera áfram í hugskoti viðkomandi. Mér finnst málfarið vera vers hjá þeim sem eru með dylgjur í garð annarra eða hótanir, sleggjudóma og fyrirfram dóma á hendur einstaklinga. Þetta kom berlega í ljós í stóra hundamálinu. Þar skitu menn almennt í buxan sín. Þarna var einstaklingur dæmdur til dauða alveg að ósekju. Töffararnir á bloggsíðunum eru svakalegir í málfari margir hverjir og rosalegir bullukollar. En eins og ég segi það getur verið gaman að lesa sumt af þessu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2007 | 17:18
Venjulegar vangaveltur
Nú er lygn sjór eftir fjörmikið kosningavor. Ekki langt síðan sumarþingi lauk sem var tíðindalítið og ekki auðséð í fljótu bragði hvað átti að koma út úr því. Maður er auðvitað hundfúll yfir hvernig alþingiskosningarnar fóru en lýðræðið er svona og við viljum hafa það þannig.Stundum finnst manni vera fullmikið af gráum svæðum í lýðræðis framkvæmdinni, kannski viljum við líka hafa það svo. Ég er að bíða eftir því hversu mörg kosningaloforða samfylkingarinnar verða svikin á fyrsta ári kjörtímabilsins en það voru ekki liðnir margir dagar stjórnarsetunnar þegar fyrsta loforðið var svikið og var haninn ekki einu sinni búinn að gala tvisvar. Það muna víst flestir hvað átti að verða fyrsta vers Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ég man ekki betur en að það ætti að taka Íslendinga af lista Bandaríkjamanna yfir hinar víg fúsu þjóðir. En hvað? "Við hörmum stríðið í Írak". Hver gerir það ekki? Nú er allt á fullu við undirbúningorkuvera sem útvega á rafmagn til fjögurra nýrra álvera, á gjafverði. "Fagra Ísland" Var þetta ekki eitt af slagorðum Samfylkingarinnar, ekki man ég betur en hvað verður um okkar fagra land þegar landið hefur misst árnar, fossana, gljúfrin , gilin og lækina undir eitt allsherjar lón. Er þetta framtíðarsýn Samfylkingafólks. Er fólk sem hætti við að kjósa Vinstri græna ekki farið að sjá eftir því eða þeir sem sóuðu atkvæði sínu á Íslandshreyfinguna, hefði ekki verð betra að kjósa Vinstri Græna. þá væri þó náttúra Ísland með öfluga málsvara. Eru engin takmörk fyrir því hverju má fórna fyrir landið okkar Ísland ef peningar eru annarsvegar? Á það fyrir okkur Íslendingum að liggja að taka þátt í að murka lífið úr Írökum og murka lífið úr fegurð Ísland og náttúruperlum þess?. Ljótt ef satt er. Það er aðeins ein manneskja í nýrri ríkisstjórn sem ég treysti, sem hefur mannlegar tilfinningar og hlýju til að bera og á eftir að koma einhverju góðu til leiðar. þetta er Jóhanna Sigurðardóttir sem ég veit að lætur ekki teyma sig út í einhverja vitleysu. Þessi kona hefur alltaf haft góðar kenndir til þeirra sem minna mega sín. Það hefði verið gott að hafa hana með okkur Vinstri Grænum í flokki. En úr því sem komið er er betra hafa hana í stjórn en utan hennar. B.G.
5.6.2007 | 22:20
Yfirgangur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 17:40
Kosningarnar
Eftir heilmikið bras tókst mér að komast á bloggið mitt, en það er orðið nokkur tími síðan að ég reyndi þetta. svo að lykilorð og annað var komið í glatkistuna. Eftir ævintýralegar kosningar og úrslit þeirra þá ætti ég auðvitað að vera sáttur þar sem mitt fólk Vinstri/Grænir juku fylgi sitt um næstum helming og fjóra þingmenn. Þetta er svo til það fylgi sem ég spáði að VG fengi þó að ég neyti því ekki að ég vonaði að við næðum 12 þingmönnum inn. Það er stór galli á skoðanakönnunum hvað vart er að treysta á það fylgi sem segist muni kjósa þennan eða hinn flokkinn mánuði fyrir kosningar og það gerist æ ofan í æ að VG toppar á vitlausum tíma. En við unnum góðan sigur þó að tækifærið til að koma Íhaldinu í stjórnarandstöðu hafi glutrast niður. Þar eiga allir vinstri flokkarnir stóra sök og ég er ekki par hrifinn af því hvernig mitt fólk hélt á málum. Sumarþing er um þessar mundir og er skrýtið að hlusta á stjórnar andstöðuna karpa um það hverjir hafi átt sökina á að ekki tókst að mynda vinstri stjórn. Sannleikurinn er sá að allir flokkarnir snéru sér é hægri hliðina og biðluðu til Sjálfstæðisflokksins, meira að segja VG af öllum flokkum. Ingibjörg ætlaði alltaf að komast í stjórn með Íhaldinu enda hafa kratar ávalt verið hægra megin við miðjuna. Það var meira segja sagt hér áður fyrr að Alþýðuflokkurinn hafi verið kýli á bak við hægra eyra Íhaldsins og mig minnir að Hannibal Valdimarsson hafi sagt þetta einhvern tímann. (kannski) Allir vita svo hvernig komið var fyrir Framsókn. Flokkurinn var eiginlega að verða samgróinn Sjálfstæðisflokknum og var ekki seinna vænna fyrir Geir Haarde að skera á milli svo að ekki kæmi sýking í flokkinn. Nú sér maður betur og betur að ekki er hægt að treysta orðum Ingibjargar nú frekar en fyrri daginn og óttast ég mest að ég lifi það ekki að sjá hér á landi sannkallaða vinstri stjórn. B.G
2.5.2007 | 13:48
Nýr Tuðari
Hallgrímur Helgason rithöfundur skilgreindi Halldór Blöndal sem mesta tuðara landsins. Það fer ekki á milli mála að hatur hans á Ólafi Raghnari virðist vera fölskvalaust ef svo má að orði komast. Ef kom smá hlé á umfjöllun hægri manna á gerðum forsetans þá sá Halldór um það að viðhalda slæmri umfjöllun um hann og endur vekja fyrri orðræður. Davíð Oddsson var líka drjúgur að niðurníða Ólaf. Ég er svo sem ekki undrandi á þessu því það má aldrei blaka við þessu liði lengst til hægri og andskotalaust að fá ekki í friði að valtra yfir meiri part þjóðarinnar í viðleitni sinni við að troða í gegnum þingið fjölmiðlafrumvarpinu margfræga. Styrmir Gunnarsson hefur líka verið seigur við að hatast út í forsetann okkar. Hannes Hólmsteinn átti þetta til líka. Nú er komin fram á sjónarsviðið kventuðari, Ásta möller sem virðist eiga að taka við af Hallddóri sem yfirtuðari Sjálfstæðisflokksins. Yfirgjammari Framsóknarflokksins Hjálmar Árnason er að hætta á þingi svo að hans nýtur ekki lengur við í gjammara hlutverkinu en það kemur maður í manns stað ef Framsókn kemur manni á þing að þessu sinni Guðjón Ólafur er feiki öflugur gjammari og trúlega næsti yfirgjammari flokksins ef hann nær inn á þing.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2007 | 10:45
Skrýtin skrúfa
Ég er að verða sjötugur og hlakka ekki neitt sérlega til elliáranna. Og það pirraði mig illa þegar nokkrir einstaklingar í hópi aldraðra tóku þann pól í hæðina að framboð til alþingis til að skerpa kröfuna um mannsæmandi kjör á efri árum væri eina leiðin til að þvinga stjórnvöld til að gera alvarlegar endurbætur á kjörum aldraðara Ég veit að úrbætur af hendi stjórnvalda eru litlar sem engar og undirskrift samnings aldraðra og ríkisvaldsins eru svo litlar að það er niðurlægjandi að horfa upp á það að ríkisstjórnin skuli ávalt komast undan því að taka almennilega á málum. Við megum ekki alltaf horfa upp á ríkistjórnina hæla sér fyrir eitthvað sem ekkert er. Ég skil ekki að fyrrverandi landlæknir skildi láta hafa sig út í það að skrifa undir þetta plagg. Nei kæru samborgara! Við þurfum ekki fleiri framboð á Íslandi, heldur að fylkja okkur að baki þeim flokki sem er með úrbæturnar til okkar í forgrunni stefnu sinnar. Vinsti hreyfingin grænt framboð er með þetta á oddinum ásamt umhverfisvernd, ef hún kemur sterk út úr kosningunum og fær aðstöðu til stjórnarmyndunnar þá verður eitthvað gert. Reynum að vera svolítið klár núna, ekki haga okkur eins og aular. BG
Alltaf geta íslendingar komið manni á óvart. Maður sér núna hvað valt er að trúa skoðanakönnunum sem gerðar eru mánuði eða tveimur fyrir kosningar. Eina marktæka könnunin er útgönguspáin á kjördag, hún er yfirleitt nokkuð rétt. Það er lenska að sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir toppi ávalt á röngum tíma eða einum mánuði og rúmlega það fyrir kosningar. Framsókn mælist mjög lág á þessum tíma en rétt fyrir kosningar koma þeir frá Kanaríeyjum og Flóríta til að kjósa því þar eru þeir oft á vetrum. Og þeir sem eru heima koma undan vetrinum aldrei harðari Framsóknarmenn en á kjördegi. Samfylkingin er aftur orðinn alger Krata flokkur sem ekki er hægt að ráða mikið í, því að margir sem gengu yfir í Samfylkinguna úr Alþýðubandalaginu gamla eru farnir að hika í afstöðu sinni og ekki endilega að treysta því að þeir kjósi Samfylkinguna í næstu kosningum. En ég spái því nú samt að þeir verði með 27 % atkvæða þegar upp verði staðið,Vinstri grænir geta vel við 15% unað Það má reikna með að 36% muni falla Íhaldsmegin, Það eru margir sem hafa það býsna gott um þessar mundir og þora ekki að breyta neinu. Framsókn nær að kroppa til sín 15% og þar með heldur Stjórnin.BG
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2007 | 15:07
Idolið mitt Ómar Ragnarsson
Mér finnst rosalega sorglegt að Ómar Ragnarsson skuli vera meiri íhaldsmaður en umhverfissinni og fari í þá ósvinnu að dreifa kröftum okkar til hægri og vinstri til þess eins að koma í veg fyrir að 12 ára stóriðjustjórn fái áfram að útdeila virkjunum til útlendinga á spottprís eingöngu til álframleiðslu. Þegar Ómar loksins reis upp á gamals aldri til verndunar hálendisins, kannski of seint að vísu varð ég strax hans maður og vonaði að hann gengi í raðir okkar sem höfum frá upphafi verið andvígir stóriðju og virkjunum umfram þarfir okkar. Mér varð að orði þegar Ómar stofnaði annað framboð með hægri áherslur, Nú er aumingja kallinn að skjóta sig og fleiri í fæturna. Ef flokkur Ómars fengi engan þingmann í næstu kosningum er nokkuð tryggt að ríkisstjórnin heldur velli. Það er engin von til þess að Ómar og flokkur hans nái neinu fylgi frá Sjálfstæðisflokknum, það sýna skoðanakannanir undan farnar vikur. Fylgið kemur frá Vinstri/grænum, frá þeim flokki sem er með verndun náttúrunna efst á stefnuskrá sinni. Þegar Ómar Ragnarsson gekk niður Laugaveginn í broddi fylkingar þúsunda fólks, karla, kvenna og barna var fólki að sýna samstöðu með sjónarmiðum umhverfissinna, Það horfði ekki til þess hvort það var til hægri eða vinstri, þetta var fólk sem vill vernda náttúruperlur Íslands. Skítt með hægri og vinstri.
BGDægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2007 | 14:56
Fyrsta bloggfærsla
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar